1. Hreyfðu þig meira! Gerðu það að daglegri áskorun að hreyfa líkamann. Labbaðu upp stiga í staðinn fyrir að taka lyftu eða rúllustiga. Farðu út með hundinn; eltu börnin; sláðu grasið; hentu bolta til vinar þíns. Allt sem hreyfir líkamsparta er ekki einungis heilbrigð hreyfing heldur minnkar líka stress! Labbaðu tvisvar upp stigana. Hugsaðu hreyfinguna í smáskrefum. Þú þarft ekki alltaf að vera klukkutíma í leikfimi, en það er samt frábært ef þú gerir það. á meðan haltu áfram að hreyfa þig!
2. Skerðu fituna í burtu. Slepptu allri sýnilegri fitu og öllu því augljóslega fitumikla s.s. frönskum kartöflum, hamboraranum og fitumikla kjötinu (eins og beikon, salami, rif og bjúgur og pylsur). Mjólkurvörur s.s. ostar, mjólk og rjómi ætti alltaf að nota lítið og einungis fituskertu vörurnar ætti að borða. Hnetur, kjötálegg, majónes, smjörlíki, smjör og sósur ætti líka að takmarka. Mikið af þessum vörum eru til ”léttar” og ætti því að nota þær frekar heldur en hinar.
3. Hættu að reykja Við vitum þetta öll! Reykingar eru slæmar fyrir heilsuna, óþarfi að fjalla meira um það hérna! Hættu þessu bara, eina sígarettu í einu!
Markmið.is skrifaði
Langar þig í flata maga? Ekki vandamálið! Hér er nokkrar ábendingar um það sem hjálpar þér að ná flötum maga fljótt! Ráðleggingarnar koma úr tímaritinu Health. 

