Nú þegar jólahátíðin dregur nær er gott að passa sig á hátíðarþrennunni – það eru kílóin þrjú sem oft vilja bætast við yfir hátíðarnar. Hérna eru nokkrar ráleggingar frá MSNBC um það sem þú getur gert til að forðast hátíðarþrennuna.
- Í fyrsta lagi, ekki segja við sjálfan þig “þetta er í lagi, það eru nú einu sinni jólin” því það mun bara opna flóðgáttirnar fyrir óþarfa ofáti. Í staðinn, þegar þú ferð í boðin, skaltu fara í þröngu fötin sem að hvetja þig til að borða ekki of mikið og einbeittu þér að félagslega hluta boðsins í staðinn fyrir matarlegahlutanum
- Síðan, og þetta kann að hljóma augljóst, en ekki standa nálægt matnum. Rannsóknir sýna að þeir sem eru of feitir sitji standi yfirleitt 5 metrum nær hlaðborðinu en þeir sem eru léttari. Ef þú ert meira en 5 metrum frá ertu líka 77% minni líkur á því að þú skoðir hvað er í boði áður en þú fyllir diskinn. Þannig að í staðinn, veldur 3 eða 4 rétti sem þú hefur ekki smakkað áður, settu þá á diskinn og reyndu að forðast af fara aftur og aftur.
- Önnur leið til að forðast hátíðarþrennuna: Hreyfðu þig á hverjum degi, sama hvað. Jafnvel 10 mínútur geta brennt soldlu stressi og kannski jafnvel hálfri smáköku
Best er að reyna að hreyfa sig örlítið fyrir hádegi, en rannsóknir sýna að 75% af þeim sem hreyfa sig á morgnana halda sig á áætlun, en einungis 25% þeirra sem æfa sig seinni partinn ná að halda áætluninni, vegna þess að í lok dagsins eru of margar afsakanir sem poppa upp. - Borðaðu 5- á dag (af ávöxtum og grænmeti) áður en þú byrjar á jólanamminu. Þegar þú ert búin að borða réttan skammt af holla matnum og nóg af trefjum freistar sykurfyllta jólanammið mun minna.
- Reyndu að forðast freistingarnar. Ekki fara í kaffihornið á vinnunni 10 sinnum á dag þegar þú veist að það er mikið af gotteríi þar. Og áður en þú ferð í partýið, fáðu þér þá hollt snarl sem er próteinríkt.
- Að lokkum, bundu að kalóríurnar er einnig að finna í drykkjum, s.s. áfenginu, jólaglögginu og flottu kaffidrykkjunum. Hafðu líka í huga að þú þarft að ganga í 1 klukkustund og 18 mínútur til að brenna einni venjulegri gosdós!
Markmið.is skrifaði
Mýta #

