Flestir myndu lýsa því sem þeim finnst gæludýrin gefa mannfólkinu til baka sem “ást/kærleika” en geta gæludýrin raunverulega elskað okkur? Samkvæmt Dr. Nicholas Dodman, dýralækni og dýra atferlisfræðingi, þá er svarið: JÁ!
Rannsóknir hafa sýnt það að nærvera eða snerting frá ákveðinni persónu lækkar púlsin hjá dýrum eins og hundum, köttum og hestum. það er merki um tengsl, ekki bara að þau séu háð okkur. Samkvæmt Dr. Dodman, elskar hundur ekki einhvern bara vegna þess að þeir eru í sama herbergi. Persónuleiki gæludýrsins og eigandans verða að vera samrýmanlegir. Þannig að dómínerandi og sjálfstæður hundur mun verða tengdari persónu sem er sterkur leiðtogi. Hinsvegar verður hundur sem hefur átt erfitt líklega tengdari rólegum og nærgætnum eiganda.
Í sumum tilvikum er dauði ekki einu sinni nóg til að brjóta í sundur þessi sterku tengsl. Hundur í Skotlandi sat við gröf eigandans síns í mörg ár, og beið eftir því að hann kæmi til baka. Hann dó að lokum, á bið. Dodman segir að kettir hafi leiðir til þess að sýna væntumþykju einnig. Þegar köttur kemur heim með dautt dýr þá er það merki um væntumþykju, það er merki um tengsl. Köttur sem eltir þig getur líka verið dæmi um sterk tengsl. Ekki endilega að kötturinn sé límdur við þig, en þeir ráfa á eftir þér inn í annað herbergi eftir nokkrar mínútur. Þeir geta líka stundum orðið örlítið leiðir þegar þú ferð og fagna þér ákaft þegar þú kemur aftur. Kettir geta líka lært að þekkja hljóðin í bílnum þínum þegar þú ekur inn innkeyrsluna eða í fótatakinu þínu þegar þú nálgast. Að sjálfsögðu er malið óumflýjanlegt merki um væntumþykju.
Og hvað getum við lært af þessu? Jú gæludýrin okkar geta kannski ekki talað við okkur eða leitt okkur, en það er ekki endilega rangt að lýsa tilfinningum þeirra til okkar sem KÆRLEIKA.
Markmið.is skrifaði
Kettir hafa kannski orðspor um að vera klárir, en hundar eru hreinir
Besti vinur mannsins gerir mun meira en bara að halda þér félagsskap. Hann getur hjálpað þér að missa kílóin, vernda hjartað og bæta skapið. Hér eru nokkrar upplýsingar um hvað hundurinn gerir fyrir mannfólkið frá tímaritinu Health og dýralækninum Dr. Marty Becker.

