Þú stóðst þig kannski frábærlega í atvinnuviðtalinu og þeir buðu þér starf – til hamingju! En þú ættir ekki að vera of rólegur, því hér eru dæmi um 5 mistök sem geta eyðilagt margt fyrir þér áður en þú byrjar. Þessar ráðleggingar koma frá sérfræðingunum hjá CareerBuilder.com:
- Fyrstu mistökin sem þú ættir að forðast eftir atvinnutilboð: Að ræða ekki launamálin. Vinnuveitendur, jafnvel í þessu ástandi, bjóða þér oft lægri laun og gera ráð fyrir að þú reynir að semja um hærri. En ef þeir vilja ekki hækka launin, spurðu þá um aðra þætti eins og sveigjanlegan vinnutíma, auka frídaga og spurðu hvort að ekki sé hægt að endurskoða launamálin að sex mánuðum liðnum.
- Mistök númer 2: Sýna hversdagshlið þína of fljótt. Starfið er enn ekki þitt. þannig að ekki byrja allt í einu á að gefa yfirmönnum þínum gælunöfn, verða blindfullur í starfsmannahófinu eða kvarta yfir yfirvofandi skilnaði hjá þér. Þangað til þú ert búin að koma þér vel fyrir í vinnunni og kynnast samstarfsmönnum þínum betur, hegðaðu þér eins “vel” og þú getur – sem þýðir, vertu vel til fara, stundvís og fagmannlegur.
- Önnur mistök: Tala illa um fyrirtækið opinberlega. Ekki segja “já” við starfi og fara síðan á Twitter og segja að þú vonir að þú fári vinnan klúðri ekki launamálunum, eða setja inn á Facebook að: “Ég get sagt með sanni strax að yfirmaðurinn minn er fífl.” Maður sem sótti um starf hjá Cisco System – tölvufyrirtæki í Bandaríkjunum, setti inn á Twitter síðuna sína “Cisco bauð mér vinnu! nú þarf ég að meta hvort ég vilji feitan launaseðil þrátt fyrir að ferðast langa leið í vinnuna og vera í starfi sem ég mun hata”. Það leið ekki á löngu þar til starfsmaður fyrirtækisins sá innleggið og atvinnutilboðið var dregið tilbaka.
- Ekki ljúga. Mörg atvinnutilboð eru gefin með fyrirvara um að upplýsingarnar þínar séu réttar og standist, sérstaklega, menntunin þín, launasaga og meðmælendur. Vinnan mun ekki bjóðast þér lengi ef þeir komast að því að þú “uppfærðir” stöðutitilinn þinn úr síðustu vinnur úr “umsjón með birgðum” yfir í “verslunarstjóri” eða segist hafa útskrifast með BA gráðu þegar þú kláraðir allt nema BA verkefnið þitt.
- Loka ráðið: Ekki bíða of lengi. Þú hefur rétt á því að hugsa um atvinnutilboðið og velta fyrir þér skilyrðunum og kjörunum, en ekki láta fyrirtækið bíða of lengi eftir svari á meðan þú bíður eftir svari frá öðru fyrirtæki. Þú verður að velja annaðhvort annars gætirðu endað á því að tapa öllu.
Markmið.is skrifaði
Náðirðu að landa atvinnuviðtali? Til hamingju! Eftir að viðtalið er búið hvernig geturðu vitað hvort að það gekk vel? Hér eru nokkur atriði sem þú getur litið eftir, frá CareerBuilder.com og Justin Honaman, hjá Coca-Cola Customer Business Solutions.
Ímyndaðu þér eftirfarandi: Þú ert í atvinnuviðtali. þú lítur út og hljómar eins og “atvinnumaður”. Allt í einu hallar viðmælandi þinn sér að þér og spyr þig: “Ef þú gætir verið einhver sögulega persóna í eina viku og lifað lífi hennar, hver myndirðu vilja vera?” Hugsanlega þarft þú ekki einu sinni að ímynda þér þetta, kannski átt þú eftir að fá svona spurningu!

