Hérna eru leiðbeiningarnar skref fyrir skref um hvernig þú lifir af næsta vinnustaða jólapartý. Notaðu þessi ráð og þá þarftu ekki að fela andlit þitt í skömm eftir partýið.
- Byrjaðu á að borða eitthvað áður en þú ferð í partýið. Af hverju? Vegna þess að sætir áfengir drykkir renna niður ljúflega – og geta valdið vandræðum seinna. Ekki drekka meira en einn drykk á klukkutstund.
- Minglaðu eins og fagmaður – vertu tilbúin með partýumræðuefni. Lestu dagblaðið áður en þú ferð og hlustaðu á útvarpið eða sjónvarpið. Ef að allt annað klikkar þá geturðu notað þessa spurningu til þess að fá fólk til að tala: “Hvaða veitingastaður finnst þér bjóða upp á bestu pizzuna í bænum?”
- Varðandi fatnað, fylgdu þessari reglu hérna: Ekki vera skraut! Þetta þýðir að þú átt ekki að fara klæddur í fáránlegu rauðu og grænu hreindýrapeysuna. Spurðu þig fyrir framan spegilinn heima: “Ef Sean Connery, Audrey Hepburn, Obama eða Jennifer Aniston myndu koma í partýið og sjá mig í þessum fötum, myndu þau vilja hanga með mér?”
- Hafðu síðan þetta í huga: Taugarnar og leiðindin er það sem fær þig til að oféta. Skv. National Mental Health Association, þá borðum við meira sem viðbragð við taugastrekkjandi kringumstæðum til þess að forðast samskipti við fólk sem gerir okkur stressuð. Mundu bara að þú ert búin að borða soldið áður en þú komst, þannig að taktu nokkur skref frá hlaðborðinu, rabbaðu og hlustaðu.
- Og hættu að hanga með félögunum. Sérðu allt áhrifamikla liðið? Af hverju ertu að hanga með sama fólkinu og þú gerir í hádegismatnum? Reyndu að hafa það að markmiði að kynnast a.m.k. 3 nýjum!
Markmið.is skrifaði
Jæja, jólahátíðin nálgast! Sem þýðir að það er kominn tími á nokkur vinnustaða jólaráð. Þessi ráð oma frá höfundi Business Class, Jacqueline Whitmore:
Viltu gefa yfirmanninum þínum jólagjöf, en vilt líka að hann hugsi “Ofsalega er Inga hugulsöm” en ekki, “Hvað er Inga að reyna að fá mig til þess að gera?” Hérna eru nokkrar leiðbeiningar um hvernig þú getir gefið góða gjöf og komið vel fyrir sem starfsmaður í leiðinni. Leiðbeiningarnar koma frá Dr. Marie McIntyre, höfundi Secrets To Winning At Office Politics.
Vinnumarkaðurinn er dálítið erfiður. Þannig að ef þú ert með atvinnu, þá skaltu reyna að gera það sem þú getur til þess að halda henni. Hérna eru nokkrar hugmyndir um hvernig þú getur haldið þér frá niðurskurðarlistanum. Þær koma úr tímaritinu Business Week.
Þessa dagana þá eru allir að bjóða upp á ráðleggingar um hvernig eigi að ná í vinnu, en sum ráðin kunna að valda skaða frekar en hitt. hér eru nokkrar algengar ráðleggingar sem þú ættir
Þú stóðst þig kannski frábærlega í atvinnuviðtalinu og þeir buðu þér starf – til hamingju! En þú ættir ekki að vera of rólegur, því hér eru dæmi um 5 mistök sem geta eyðilagt margt fyrir þér áður en þú byrjar. Þessar ráðleggingar koma frá sérfræðingunum hjá CareerBuilder.com:
Það er að segja, skv. Jeff Quorio, höfund bókarinnar “How to Buy and Sell Just About everything”. Hér eru nokkur ráð um hvernig þú getur komið vel fyrir á hvaða fundi sem er:
Rannsóknir sína að kvartanir vegna samstarfsmanna sem gleyma að svara netpóstum, eru dónalegir og bera enga virðingu fyrir öðrum eru að aukast. En þú verður að vera kurteis – þú eyðir næstum einum þriðja af lífi þínu með þessum samstarfsmönnum þínum! Þannig að hér eru nokkrar hugleiðingar frá Dr. P.M. Forni, höfundi bókarinnar Choosing Civility:

