1. Fylgstu með: Ég vona að þú hafir fylgst vel með á árinu, því að athygli og einbeiting hjálpar til við að muna betur. Eitt helsta vandamálið er að við einbeitum okkur ekki að ákveðnum hlutum í kringum okkur og munum þá síður. Áhugi spilar hér að sjálfsögðu heilmikið inn í, því við einbeitum okkur sjálfkrafa meira að þeim hlutum sem við höfum meiri áhuga á en hinu.
2. Það að muna gerist ekki sjálfkrafa: Því meðvitaðari sem við erum um að einbeita okkur og muna eitthvað tiltekið, því betur munum við muna það. Og því fleiri smáatriði munum við.
3. Afslappaður heili hjálpar minninu: Lærðu að slaka á huganum. Og mundu það sem þú lærðir í afslöppuðu andrúmslofti. Tökum sem dæmi að þú hafir týnt bíl lyklunum. Ef þú verður frústreraður þá er oft erfiðara að muna hvert þú settir þá, en þegar þú slakar á og hugurinn fær aðeins að róast, að viti menn þá geturðu oftar en ekki spólað eilítið til baka og fundið út hvar þú settir bíllyklana. Var það nokkuð í jakkavasanum?
Markmið.is skrifaði
Rannsóknir sína að þú getur bætt a.m.k. 10 árum við líftíma heilans með því einfaldlega að nota hann meira. Fylgdu þessum ráðum frá Rodale Publishing, og heilinn þinn verður skarpari, lengur.

