Mistök sem þú ættir að forðast eftir að starf býðst.

11. nóvember 2009

Common_Mistakes_JobÞú stóðst þig kannski frábærlega í atvinnuviðtalinu og þeir buðu þér starf – til hamingju! En þú ættir ekki að vera of rólegur, því hér eru dæmi um 5 mistök sem geta eyðilagt margt fyrir þér áður en þú byrjar. Þessar ráðleggingar koma frá sérfræðingunum hjá CareerBuilder.com:

  • Fyrstu mistökin sem þú ættir að forðast eftir atvinnutilboð: Að ræða ekki launamálin. Vinnuveitendur, jafnvel í þessu ástandi, bjóða þér oft lægri laun og gera ráð fyrir að þú reynir að semja um hærri. En ef þeir vilja ekki hækka launin, spurðu þá um aðra þætti eins og sveigjanlegan vinnutíma, auka frídaga og spurðu hvort að ekki sé hægt að endurskoða launamálin að sex mánuðum liðnum.
  • Mistök númer 2: Sýna hversdagshlið þína of fljótt. Starfið er enn ekki þitt. þannig að ekki byrja allt í einu á að gefa yfirmönnum þínum gælunöfn, verða blindfullur í starfsmannahófinu eða kvarta yfir yfirvofandi skilnaði hjá þér. Þangað til þú ert búin að koma þér vel fyrir í vinnunni og kynnast samstarfsmönnum þínum betur, hegðaðu þér eins “vel” og þú getur – sem þýðir, vertu vel til fara, stundvís og fagmannlegur.
  • Önnur mistök: Tala illa um fyrirtækið opinberlega. Ekki segja “já” við starfi og fara síðan á Twitter og segja að þú vonir að þú fári vinnan klúðri ekki launamálunum, eða setja inn á Facebook að: “Ég get sagt með sanni strax að yfirmaðurinn minn er fífl.” Maður sem sótti um starf hjá Cisco System – tölvufyrirtæki í Bandaríkjunum, setti inn á Twitter síðuna sína “Cisco bauð mér vinnu! nú þarf ég að meta hvort ég vilji feitan launaseðil þrátt fyrir að ferðast langa leið í vinnuna og vera í starfi sem ég mun hata”. Það leið ekki á löngu þar til starfsmaður fyrirtækisins sá innleggið og atvinnutilboðið var dregið tilbaka.
  • Ekki ljúga. Mörg atvinnutilboð eru gefin með fyrirvara um að upplýsingarnar þínar séu réttar og standist, sérstaklega, menntunin þín, launasaga og meðmælendur. Vinnan mun ekki bjóðast þér lengi ef þeir komast að því að þú “uppfærðir” stöðutitilinn þinn úr síðustu vinnur úr “umsjón með birgðum” yfir í “verslunarstjóri” eða segist hafa útskrifast með BA gráðu þegar þú kláraðir allt nema BA verkefnið þitt.
  • Loka ráðið: Ekki bíða of lengi. Þú hefur rétt á því að hugsa um atvinnutilboðið og velta fyrir þér skilyrðunum og kjörunum, en ekki láta fyrirtækið bíða of lengi eftir svari á meðan þú bíður eftir svari frá öðru fyrirtæki. Þú verður að velja annaðhvort annars gætirðu endað á því að tapa öllu.

Hár blóðþrýstingur, Alzheimer og gigt, hvað er til ráða?

10. nóvember 2009

bloodpressureViltu koma í veg fyrir háan blóðþrýsting, Alzheimers eða gigt? Að velja rétt í matinn kann að hafa áhrif á þessa sjúkdóma. Rannsóknir sína að sumar fæðutegundir geta verið afar árangursríkar í baráttunni við þessa sjúkdóma. Þannig að hér eru nokkrar ábendingar um það sem þú ættir að borða – og drekka – ef þú vilt halda heilsunni í lagi, fengið frá Rodale útgáfufélagi.:

  • Ef þú ert með of háan blóðþrýsing: Drekktu þá stórt glas af 100% appelsínusafa. Ný rannsókn í New England Journal of Medicine segir frá því að aukning á kalsíum (potassium) og kalki í fæðunni þinni getur haft áhrif á blóðþrýsingin til lækkunar. Hvernig? Skv. Dr. Lindu Van Horn, prófessor við Nortwestern háskólan, hafa steinefnin verndandi áhrif á nýrun þegar kemur að magni natríums (salti) sem oft ýtir undir háan blóðþrýsting. Kalkbættur appelsínusafi hefur venjulega mikið af báðum steinefnum. Einnig er mikið af C-vítamínum í appelsínusafanum og fólkið sem er með mest af C-vítamíni í blóðinu eru um 40% minn líklegri ti lað deyja úr hjartasjúkdómum heldur en fólk sem er með lágt magn af C-vítamíni.
  • Varðandi Alzheimers: Möndlur. Möndlur innihalda E-vítamín. Rannsókn sem National Institutes of Health stóð fyrir, fann út að andoxunaráhrif E-vítamíns verndar heilan eftir því sem þú eldist. Handfylli af möndlum inniheldur u.þ.b. helming af ráðlegðum dagskammti af E-vítamíni, þannig að kannski ættu tvær lúkur á dag að duga.
  • Ef þú hefur áhyggjur af gigt: Borðaður þá hálfan bolla af soðnu grænmeti. Grísk rannsókn gefur til kynna að því meira af soðnu grænmeti sem þú borðar því minni líkur eru á því að þú fáir gigt. Rannsóknin fylgdist með heilsu og matarræði yfir 300 manns og fann út að þeir sem átu MEST af soðnu grænumeti voru 75% minna líklegri til þess að fá gigt heldur en þeir sem borðuðu minnst. Hversvegna? Ein mögulega ástæða er sú að hitinn eyðleggi frumuvegg grænmetisins sem kann að auka frásog líkamans af næringarefnum og að grænmetið hafi mikið magn næringarefna sem hjálpi til við að vernda gegn gigt.

3 algengar og góðar spurningar

9. nóvember 2009

survivor_logoÞað eru margar spurningar sem brenna á almenningnum um hvað skuli gera í hinum og þessum aðstæðum, hérna eru 3 aðstæður sem að Mary Hunt, höfundur bókarinnar Debt Proof Living fjallar um. 

Aðstæður #1: Þú missir vinnuna og átt bara nokkur hundruð þúsund krónur í sparnaði. Hvað skal gera fyrst? Hunt segir að þú eigir að byrja á því að sækja um atvinnuleysisbætur, því að það getur tekið nokkrar vikur að að ganga frá málum þar þangað til þú færð bætur greiddar út. Næst, skaltu frysta öll óþarfa útgjöld. Þú getur sagt við börnin að þetta sé tímabundið – eins og ykkar eigin Þraukara (Survivor) sjónvarpsþáttur! Eyddu bara í algjörar nauðsynjar, fæði, húsnæði, eldsneyti, skatta, lækniskosntað og allra nauðsynlegustu reikningana. Það þýðir að heimilið, bíllinn og rafmagnið ætti að borga fyrst. Þú ættir að halda þér í þessum þraukaralíferni þangað til þú ert komin með annað starf.

Aðstæður #2: Þú ert í peningavandræðum. Ættirðu að taka út af lífeyrissparnaðinum? Hunt segir – ekki einu sinni hugsa það! Lífeyrissparnaðurinn er ekki bankareikningur eða hraðbanki. Þarna eru með peninga sem ekki er búið að greiða skatt af og er eyrnamerkt framtíðinni þinni. Þú vilt reyna að forðast þetta undir öllum kringumstæðum. Reyndu frekar að lifa í þraukaraástandinu.

Aðstæður #3: Ættirðu að kaupa þér fasteign núna – er það brjálaði eða ekki? Hunt segir að ef þú hefur efni á því, þá er frábær tími til að kaupa fasteignir í dag! Verðið er lágt og hægt er að gera góð kaup á ýmsum íbúðum.Bankarnir eru þó tregir til að lána, þannig að þú þarft að eiga dágóða fjárhæð til að byrja þetta og að vera með stöðuga vinnu ef þú ætlar út í þetta.


Orð vikunnar

8. nóvember 2009

john-maxwell“Leaders manipulate others when they move them for the leader’s advantage. Leaders motivate others when they move them for everyone’s advantage.”

- John C. Maxwell


John C. Maxwell og leiðtoginn IV. hluti

7. nóvember 2009

Hér að neðan má sjá fjórða hlutann af sjö þar sem að John C. Maxwell fjallar um nokkur af lögmálum sínum um leiðtoga. En Maxwell er m.a. höfundur bókarinnar The 21 Irrefutable laws of leadership.

more about “John C. Maxwell og leiðtoginn IV. hluti“, posted with vodpod

 


Seven Great Questions to Ask at a Job Interview

6. nóvember 2009

Við birtum einstaka sinnum greinar á ensku, þessi er héðan – eftir Paul Sloane

If you are going for an interview as a prospective employee then you should do some research.  Read the job description and requirements carefully.  Browse the web site to see how the organization presents itself.  Search for news items and comments about the company on news sites and blogs.

For the interview itself you should dress smartly and appropriately.  It is important to have some questions prepared and here are a few that could really help:

1.  What exactly would my day-to-day responsibilities be? It is essential that you clearly understand your role and the tasks that you would be expected to undertake.  It is easy to make assumptions and get the wrong impression of what the work would be so it is vital for both sides that there is clarity in what is expected of you.  If the interviewer cannot give a clear answer then this is a worrying sign, so politely follow up with more questions.  Some people even ask to see exactly where they will sit.

2.  What are the opportunities for training and career advancement? This question serves two purposes.  It helps you to understand where the job might lead and what skills you might acquire.  It also signals that you are ambitious and thinking ahead.

3.  What is the biggest challenge facing the organization today? This sort of question takes the interview away from the detail and towards strategic issues.  It allows to you see and discuss the bigger picture.  It proves that you are interested in more than just the 9 to 5 aspects of the job.  It can lead to interesting discussions that can show you in a good light – especially if you have done some intelligent preparation.  If appropriate you can follow up this question with some questions about the objectives of the department and the manager who is interviewing you.

4.  When did you join? After the interviewer has asked a number of questions about you it can make a good change to ask a gentle question about them.  People often like talking about themselves and if you can get them talking about their progress in the company you can learn useful and interesting things.

5.  What are the criteria that you are looking for in the successful candidate for this position? The job advertisement may have listed what was wanted in a candidate but it is very useful to hear the criteria directly from the interviewer.  The more that you can discover about what they want and how they will make the decision the better placed you are to influence that decision.

6.  How do you feel that I measure up to your requirements for this position? This follows on naturally from the previous questions.  It may seem a little pushy but it is a perfectly fair thing to ask.  In sales parlance this is a ‘trial close’.  If they say that you are a good fit then you can ask whether there is any reason you might not be offered the job.  If they say that you are lacking in some key skill or attribute then you can move into objection handling mode and point out some relevant experience or a countervailing strength.

7.  Would you like to hear what I could do to really help your department? If you want the job then this is a great question to ask at the end of the interview.  Most interviewers will reply, ‘Yes.’  Drawing on what you have learnt in the conversation, you can give a short sales pitch on why you fit the criteria and why your strengths and ideas will siginficantly assist the boss to meet their objectives.  Make it short, direct and clear with the emphasis on the benefits for them of having you in the team.  At the end ask something like, ‘how does that sound?’

Many candidates take a passive role at the interview.  They competently answer the questions that are put to them but they never take the initiative by asking intelligent questions that steer the interview in a helpful direction.  If you are a proactive candidate who asks the sorts of questions given above then you will be seen as more dynamic and you will significantly increase your chances of being offered the job.


3 Markmiðasetningar mistök!

5. nóvember 2009

woman-start-line1. Að setja of mörg markmið í einu

Ein af hinu eðlilegu mistökum sem fólk gerir er að setja of mörg markmið of fljótt. Það er ekki óalgengt að fólk setji kannski 5 or 10 nákvæm markmið. En það getur stundum haft slæmar áhrif. Ef Þú ert með of mörg markmið, þá verður athygli þín og orka of dreifð og þú ert líklegri til að finnast þú eiga fullt í fangi með markmiðin þín. Taktu bara góða stund og farðu yfir markmiðin þín, forgangsraðaðu þau og reyndu að vinna fyrst í mikilvægustu og fara seinna í þau ómikilvægari. Þannig nærðu meiri stjórn á markmiðum þínum

2. Að gleyma skammtímamarkmiðum

Þegar markmið íþróttamanna, nemenda og fagmanna á mörgum sviðum eru skoðuð, þá kemur í ljós að oftar en ekki vantar skammtímamarkmið. Auktu líkurnar á að ná markmiðum þínum með því að setja þér skammtímamarkmið sem leiða að langtímamarkmiðum þínum!

3. Að fylgjast ekki með árangri þínum og gleyma aðlögun

Tímarnir breytast og oft breytist forgangsröðun, áhugamál og aðstæður okkar. Stundum koma erfiðleikar sem hindra ákveðin markmið okkar og þá verðum við að fylgjast með stöðunni og stundum að aðlaga og breyta markmiðum okkar eilítið.


Fundarhegðun þín kann að hafa áhrif á starfsframan þinn!

4. nóvember 2009
meetingsÞað er að segja, skv. Jeff Quorio, höfund bókarinnar “How to Buy and Sell Just About everything”. Hér eru nokkur ráð um hvernig þú getur komið vel fyrir á hvaða fundi sem er:
  • Vertu hress og einblíndu á að finna lausnina og gefðu tvöfalt fleiri jákvæðar athugasemdir en neikvæðar. Rannsóknir sýna að þegar athugasemdir meðal starfsmanna eru að mestu jákvæðar að þá gangi fyrirtækinu í heild sinni betur.
  • Talaðu við allan fundinn, jafnvel þegar þú ert að svara spurningu. Láttu öllum líða eins og þeir séu með. 
  • Þegar þú hefur komið á fram þínum uppástungum, spurðu hvað fólki finnist. Hvettu til umræðu og viðbragða, þannig að fólkinu finnist það vera mikilvægt.
  • Önnur leið til að skína á fundum, ekki einoka þá. Vertu nákvæmur, en ekki tala svo lengi að þú missir athyglina eða bælir niður pælingar hjá einhverjum sem vill tala.
  • Hjálpaðu fundarmönnum að slaka á með því að endurspegla þeirra eigin hegðun. Með öðrum orðum, ef að næstum allir eru með stuttar athugasemdir og viðbrögð, þá ættu þín viðbrögð að vera stutt líka. Ef að allir eru frekar femnir og tala hljóðlátlega, ekki reyna að vera öðruvísi, annars þá gætir þú verið álitinn “ekki hluti af hópnum”.
  • Og síðasta ráðið til þess að koma vel fyrir á fundum og skjóta starfsframa þínum áfram: Vertu áhugasamur – hallaðu þér fram, kinkaðu kolli og náðu augnsambandi.

Hegðun sem fer í taugarnar á lækninum

3. nóvember 2009

frustratedNýleg könnun sýndi að læknar lýstu 15% sjúklinga sinna sem “erfiða”. Hérna er listi með hegðunum sjúklinga sem skv. ABC news fer í taugarnar á læknum:

  • #1Þú kemur með þriðja aðilann með þér til læknisins. Rannsókn sýndi að einn af hverjum fimm sjúklingum tekur maka eða vin sinn með sér í læknisskoðunina. Þetta er í fínu lagi ef að þú ert barn, en þegar þú ert fullorðin, þá þurfa læknarnir að eiga skilvirk og skýr samskipti við sjúklinginn til þess að geta ráðlagt um bestu meðferðina. Þannig að því fleiri einstaklingar sem þú tekur með þér, því meiri truflun verður og því óskilvirkari verður heimsóknin. Skildu vinina því eftir á biðstofunni.
  • #2 : Að gleyma að segja lækninum frá fæðubótaefnum. Flestir gera ráð fyrir því að að ólyfseðilsskyld lyf, náttúrulyf eða fæðubótarefni flokkist ekki sem “lyf”. Þannig að þegar læknirinn spyr hvort að viðkomandi sé að taka inn einhver lyf að þá er svarið venjulega “nei”. En staðreyndin er sú að sum náttúrulyf eða fæðubótarefni geta haft slæm áhrif á líkamann þegar þeim er blandað við önnur lyf! Þannig að þegar læknirinn spyr, láttu hann þá vita af öllum lyfjunum sem þú ert að taka og leyfðu lækninum að ákveða hvað eigi við og hvað eigi ekki við.
  • #3 : Sjúklingar sem ætlast til þess að pilla lækni allt. Í dag er offita, hátt kólesteról og hár blóðþrýstingur algengt vandamál!  En í stað þess að breyta lífstíl sínum, ætlast margir til þess að læknar gefi þeim bara pillu til þess að “laga vandamálið”. Hinsvegar er staðreyndin sú að með því að losna við, jafnvel bara lítið magn af aukaþyngdinni og með því að breyta matarræðinu að þá er hægt að seinka einkennum þessara sjúkdóma eða jafnvel koma í veg fyrir þá án þess að leyta í dýr lyf.
  • #4: Sjúklingar sem sjúkdómagreina sig SJÁLFIR. Það er í lagi að gera smá netkönnun áður en þú ferð til læknisins, en þú ættir samt ekki að fara til læknisins og “heimta” nýja lyfið sem þú sást auglýst á netinu eða “heimta” dýrar rannsóknir BARA vegna þess að þú last eitthvað á netinu og þú heldur að þú sért með einhvern ákveðin sjúkdóm. Leyfðu lækninum að greina þig – og þú getur þá reynt að fá annað álit ef þörf þykir. En læknirinn þinn er læknirinn.

Hafðu þetta tvennt í huga!

2. nóvember 2009

cryingVið erum öll að reyna að minnka útgjöld og spara peninga, sérstaklega þessa dagana. Hérna eru tvennt sem við ættum að hafa í huga þegar kemur að fjármálunum fundið í Real Simple tímaritisins.

Þegar kemur að fjármálunum: Ekki láta tilfinningarnar ráða. Amanda Clayman, félagsráðgjafi sem sérhæfir sig í fjárhagsvandamálum segir að í upphafi þrufi fólk að HÆTTA að kvarta yfir þeim neikvæðu hlutum og atburðum sem hafa orðið. Það er óþarfa orkueyðsla og eitthvað sem allar óskir og vonir heimsins fá ekki breytt. Í raun er lykilatriði að gera skýr skil á milli peninga og tilfinninga. Clayman segir að skjólstæðingar sínir noti oft “kreditkorta meðferð” til þess að halda sér á floti, en að slíkt geri bara illt verra. Já, aðstæður þínar eru eflaust mjög ósanngjarnan, en heimurinn skuldar þér ekki nýjan fataskáp í staðinn! Þannig að haltu tilfinningunum fyrir utan þegar þú ert að taka fjárhagsákvarðanir og einblíndu á það sem er praktískt. Lífið heldur áfram og leyfðu því að gera það.

Darryl Robinson, barþjónn á Hudson Bar í New York kemur með hina ábendinguna. Hann segir að á erfiðum tímum, sé mikilvægt að einangra sig ekki. Við þurfum öll félagsskap og vini og það er hægt að skemmta sér með vinum á ódýran hátt. Hverju mælir hann með? Takmarkaðu þig við annaðhvort föstudags eða laugardagskvöld þegar flestir eru í fríi. Þannig nærðu að hitta mun fleiri á styttri tíma. Einnig fáðu þér eitthvað að borða heima hjá þér áður en þú skellir þér út á lífið og láttu einn drykk duga um kvöldið, barþjónninn mælir sjálfur með martini.